Skip to content
narrow screen wide screen auto screen Increase font size Decrease font size Default font size blue color orange color green color

Skólabúðir

Kafarar í heimsókn Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
kafariSunnudaginn 6. september sl. fengum við góða og skemmtilega heimsókn. Þetta voru kafararnir Björgvin Vídalín Arngrímsson og Arnoddur Erlendsson sem notuðu veðurblíðuna til að kafa í sjónum við Reykjatangann. Þeir fóru hér fram með allri fjörunni bæði sunnan við Byggðasafnið og í Bótinni, þ.e. víkininni fyrir neðan smíðahúsið. Það kom þeim og okkur skemmtilega á óvart hversu mikið og fjölbreytt lífríkið er hér í sjónum við Reykjatanga.
Síðast uppfært ( Þriðjudagur, 07 September 2010 13:11 )
Lesa meira...
 
Veðurblíða Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
blidaEinmuna veðurblíða er búin að vera í Hrútafirði þessa vikuna og höfum við verið mikið úti við kennslu. Heiti lækurinn togar til sín þegar veðrið er gott og  þeir hörðustu skelltu sér í sjósund. Valtímarnir á fimmtudag fóru allir fram utan dyra, föndur, stomp, íþróttir, heiti lækurinn og fl. Síðan endaði fjörið með diskó-partí í sundlauginn í gærkvöld en krakkarni úr Oddeyrarskóla og Öldutúnsskóla eru nú að undirbúa heimferð. Í næstu viku koma svo krakkar úr Hlíðaskóla og Hvaleyrarskóla.
Síðast uppfært ( Mánudagur, 06 September 2010 12:29 )
 
Fjölgun hjá hænunum Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

haenaÞau börn sem búin eru að koma í Skólabúðirnar þekkja hænurnar okkar og hafa haft gaman af þeim. Í fyrradag byrtist ein hænan, eftir nokkra vikna dvöl upp í skógrækt, með 13 unga með sér. Þetta er mikil fjölgun í okkar litla hænsnastofn, en þetta eru íslenskar landnámshænur, sem eru mjög skrautlegar og skemmtilegar. Nú fer mikill tími hjá krökkunum að fylgast með ungunum og hefur hver sína skoðun á því hvernig best sé að hlúa að þeim og það spretta líka upp tillögur að nöfnum þó ekki sé búið að kyngreina hópinn. Þetta er bara skemmtilegt.

Síðast uppfært ( Mánudagur, 06 September 2010 12:32 )
 
Farsímar eru ekki leyfðir í Skólabúðunum ! Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
mynd2Veðrið í Hrútafirði er hreynt út sagt frábært í dag og það eru krakkarnir líka sem dvelja þessa viku í Skólabúðunum. Það er nokkuð um að við fáum fyrirspurnir í gegnum síðuna okkar; um það hvort nemendur megi hafa með sér farsíma hingað.  Svarið er sem gefum er einfalt. Það er stranglega bannað! Það hlýtur að vera bæði betra og ekki síður skemmtilega að geta sagt fréttir af dvölinni þegar heim er komið heldur en að liggja stanslaust í símanum, sem truflar bara starfsemina hjá nemendum og kennurum. Er ekki tilvalið að hvíla tækið "góða" í eina viku og uppgötva að það er þrátt fyrir allt til líf án farsíma?
Síðast uppfært ( Sunnudagur, 29 Ágúst 2010 11:20 )
 
Nýtt starfsár að hefjast Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
1Þá eru fyrstu skólarnir að koma til okkar á þessu hausti og eru það skólar frá Vestfjörðum sem koma fyrstir eins og undanfarin ár. Þetta eru skólarnir frá Ísafirði, Bolungarvík, Suðureyri, Þingeyri, Súðavík og Patreksfirði. Nú eru síðustu forvöð fyrir skóla að fá pláss hjá okkur í  vetur þar sem allar vikur eru nánast fullbókaðar fram til vors 2011.
Síðast uppfært ( Mánudagur, 23 Ágúst 2010 13:13 )
Lesa meira...
 
Fleiri greinar...
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 Næsta > Síðasta >>

Síða 1 af 7

Skoðanakönnun

Hvað finnst þér skemmtilegast í skólabúðunum?
 

Skólar þessa vikuna

Hlíðaskóli og Hvaleyrarskóli.
200

Að skoða síðuna núna

Það er/u 4 gestir inni