|
Reykjaskóli fyrir þig og þína samkomu
Í Reykjaskóla býðst hópum aðstaða til gistingar og samkomuhalds um helgar og á sumrin. Þar er kjörin aðstaða fyrir árshátíðir, ættarmót, óvissuferðir, hvataferðir og aðrar slíkar samkomur.
Hópar um helgar og á sumrin
Utan hefðbundins starfstíma skólabúðanna, s.s. um helgar yfir vetrarmánuðina og allt sumarið frá byrjun júní til ágústloka er starfrækt ferða- og veisluþjónusta í Reykjaskóla. Lögð er áhersla á persónulega þjónustu og fjölbreytta afþreyingu. Matreiðslan er í góðum höndum Karls B. Örvarssonar sem töfrar jafnt fram veisluhlaðborð sem girnilegar margréttaðar máltíðir fyrir þá sem sækja staðinn heim.
Kyrrð, kanóar, minjar og fegurð
Gistirými er fyrir allt að 120 manns í tveggja til fjögurra manna herbergjum, stór og bjartur matsalur, íþróttahús, sundlaug, heitir pottar, gufubað og stórt leikrými. Nágrennið við fjöruna eykur enn á afþreyingarmöguleikana því þar er mikið fuglalíf og möguleiki á að fara í róður á kanóum á firðinum. Byggðasafnið að Reykjum hefur líka aðdráttarafl með hákarlaskipiið Ófeig, baðstofu frá fyrri tíma og fleira merkilegt úr héraðinu við Húnaflóa.
Allt frá kóræfingum til ættarmóta
Æfingaaðstaða fyrir kóra og tónlistarfólk er fyrir hendi og nægt húsrými fyrir tónleika. Þá er góð aðstaða fyrir hvers kyns íþróttaiðkendur þar sem íþróttahús er á staðnum, 25 m sundlaug, heitir pottar og gufubað. Nánari upplýsingar veitir Karl B. Örvarsson.
|
|
Síðast uppfært ( Þriðjudagur, 07 Október 2008 12:05 )
|