Þann 1. ágúst 2003 tóku núverandi rekstraraðilar, þau Karl B. Örvarsson og Halldóra Árnadóttir ásamt Þorvarði Guðmundssyni og Ingunni Petersen við rekstri Skólabúðanna í Reykjaskóla fyrir hönd sveitarfélagsins Húnaþings vestra. Markmið þess að færa reksturinn í þetta form einkavæðingar var að tryggja áframhaldandi uppbyggingu Skólabúðanna og vinna markvisst að viðhaldi og endurbótum. Að loknu skólaári vorið 2008 létu Þorvarður og Ingunn af störfum við Skólabúðirnar en Karl og Halldóra halda rekstrinum áfram og í dag eru 7 starfsmenn í fullu starfi við Skólabúðirnar. Utan hefðbundins starfstíma Skólabúðanna er rekin Ferða- og veisluþjónusta í Reykjaskóla. 
|
|
Síðast uppfært ( Föstudagur, 23 Október 2009 09:50 )
|