|
Muna eftir umsóknum fyrir næsta skólaár! |
|
|
|
Núna eru aðeins tvær vikur þar til Skólabúðirnar fara í páskafrí. Við viljum hvetja þá skóla sem eiga eftir að senda inn umsóknir fyrir næsta skólaár að gera það sem allra fyrst svo hægt verði að verða við óskum sem flestra um dvalartíma. Aðsóknin virðist ætla að verða góð fyrir næsta vetur miðað við þær umsóknir sem borist hafa nú þegar.
Við sendum öllum nemendum og kennurum, sem hafa verið hjá okkur, bestu óskir um gleðilega páska og hlökkum til að fá nýja hópa eftir páskafrí en það eru Norðlingaskóli, Grsk. Patreksfjarðar og Síðuskóli sem koma fyrstir og síðan eru allar vikur eftir það fullbókaðar fram á vor. Gleðilega páska ! |
|
Síðast uppfært ( Mánudagur, 15 Mars 2010 22:23 )
|