Starfsfólk Skólabúðanna óskar öllum nær og fjær gleðilegs sumars og vonast til að sjá sem flesta á næsta skólaári.
Gleðilega páska
Nú styttist í páskana og eins og undanfarin ár þá eru komnir páskaungar í náttúrufræðistofuna. Það eru landnámshænurnar okkar sem eru svo duglegar að verpa sem eiga ungana. Þeir verða einn mánuð í búrinu sínu en fara þá út í hænsnakofa og samlagast hópnum þar. Núna síðustu vikuna fyrir páskafrí eru það Naustaskóli og Grsk. Vestmannaeyja sem dvelja hjá okkur. Gleðilega páska öll!
Síðast uppfært ( Þriðjudagur, 23 Mars 2010 08:28 )
Muna eftir umsóknum fyrir næsta skólaár!
Núna eru aðeins tvær vikur þar til Skólabúðirnar fara í páskafrí. Við viljum hvetja þá skóla sem eiga eftir að senda inn umsóknir fyrir næsta skólaár að gera það sem allra fyrst svo hægt verði að verða við óskum sem flestra um dvalartíma.Aðsóknin virðist ætla að verða góð fyrir næsta vetur miðað við þær umsóknir sem borist hafa nú þegar.
Af gefnu tilefni skal það tekið skýrt fram að það er stranglega bannað að nemendur komi með fartölvur í Skólabúðirnar. Það hefur örlítið borið á þessu og er alls ekki ætlast til þess þar sem tölvur og farsímar hafa truflandi áhrif á starfið í Skólabúðunum. Við biðjum skólastjóra og kennara að koma þessum skilaboðum til nemendanna sem eru að koma í okkar. Við höfum leyft krökkum sem það vilja, að koma með leikjatölvur sem þau geta farið í á kvöldin þegar upp í rúm er komið. Börnin hafa nóg fyrir stafni allan daginn alla vikuna við leik og störf, svo þeim veitir ekki af hvíld þegar dagur er að kveldi kominn.
Síðast uppfært ( Fimmtudagur, 04 Febrúar 2010 09:11 )
Ábending
Þar sem einhverjar útgáfur af Internet Explorer ráða ekki við að hlaða inn heimasíðunni almennilega er fólki bent á að notast við þróaða vafra eins og Firefox eða Google Chrome.
Síðast uppfært ( Miðvikudagur, 03 Febrúar 2010 13:56 )