Skip to content
narrow screen wide screen auto screen Increase font size Decrease font size Default font size blue color orange color green color

Skólabúðir

21. starfsár Skólabúðanna að hefjast Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Þann 24. ágúst nk.hefja Skólabúðirnar sitt 21.starfsár. Að venju eru það grunnskólarnir frá Vestfjörðum sem ríða á vaðið.

Lesa meira...
 
Umsóknir að berast fyrir skólaárið 2009-2010 Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Nú streyma umsóknir um dvöl í Skólabúðunum fyrir næsta skólaár og ljóst að skólarnir ætla að leita allra leiða til að koma til í Skólabúðirnar þótt niðurskurðar öxinni sé víða beitt til hinns ítrasta. Við erum virkilega ánægð með viðbrögð skólanna og ljóst að þetta er orðin ríkur þáttur í skólastarfi fjölmargra skóla, sem segir okkur að við erum á réttri leið í okkar starfi. Karl og Halldóra hvetja skólastjóra til að hafa samband við sig áður en þeir ákveða að hætta við að koma því það eru ýmis úrræði, sem hægt er að leita í áður en til þess kemur að hætta við komu í Skólabúðirnar. Hægt er að hafa samband í gegnum netpóst og svar berst um hæl, eða eins fljótt og auðið er. Látum ekki kreppuna bitna á börnunum, sem eiga engan hlut að máli ! Skólabúðirnar eru komnar til að vera !

 
Allt komið í gang á nýju ári Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

olafshusNúna er starfsemi Skólabúðanna komin í fullan gang eftir jólafrí. Fyrstu hóparnir komu til okkar 5. janúar og eru það Kársnesskóli og Borgaskóli. Einhverjir skólar hafa hugleitt það að koma ekki í vetur vegna niðurskurðar í skólakerfinu, en það eru sem betur fer bara örfáir skólar sem hafa hætt við að koma. Við sem stöndum að rekstri Skólabúðanna teljum að hafi einhverntíman verið þörf fyrir svona starfsemi eins og skólabúðir eru, þá sé það núna. Við hlökkum til að sjá sem flest börn hér í vetur og vonum að ástandið í þjóðfélaginu hafi sem minnstar afleiðingar á komu skólanna til okkar.Á næstu dögum sendum við út umsóknir fyrir næsta skólaár og vonumst eftir góðum og skjótum viðbrögðum við því. Við óskum öllum gæfu og góðs gengis á nýju ári. Starfsfólk Skólabúðanna.

Síðast uppfært ( Þriðjudagur, 13 Janúar 2009 05:16 )
 
Skólabúðirnar komnar í jólafrí ! Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Nú erum við komin í jólafrí eftir skemmtilegt og annasamt haust. Á haustönn hafa komið 42 skólar til okkar og eru það Grunnskólinn í Grindavík og Hvaleyrarskóli sem síðastir fóru frá okkur fyrir jól.

Síðast uppfært ( Fimmtudagur, 17 September 2009 17:45 )
Lesa meira...
 
Ný síða komin í loftið Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Loksins er uppfærslu lokið á heimasíðu Skólabúðanna. Eða um það bil. Einhverjar myndir eiga eftir að koma frá því í haust og einnig gamlar myndir. Gott væri að ef einhverjir sjá villur í dagsetningum sem fylgja myndum láti vefstjóra vita hið snarasta. Einnig að þeir sem eru að skoða eldri myndir sendi dagsetningar þegar þeir voru í heimsókn á sínum tíma. Svo auðvitað að láta vita ef einhvað hefur gleymst eða ykkur finnst vanta.
Síðast uppfært ( Sunnudagur, 02 Nóvember 2008 14:10 )
 
Fleiri greinar...
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 Næsta > Síðasta >>

Síða 4 af 7

Skoðanakönnun

Hvað finnst þér skemmtilegast í skólabúðunum?
 

Skólar þessa vikuna

Hlíðaskóli og Hvaleyrarskóli.
200

Að skoða síðuna núna

Það er/u 4 gestir inni