Skip to content
narrow screen wide screen auto screen Increase font size Decrease font size Default font size blue color orange color green color

Skólabúðir

Píanóflutningur Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

„Skömmu eftir 1940 ráðstafaði þáverandi forsætisráherra, Hermann Jónasson, ágætu píanói til skólans. Á píanóinu er svofelld áletrun: Gave til Island fra Kaptein Thor Ödegård Omejer, Norge“ (Héraðsskólinn að Reykjum 1931-1981, Ólafur H. Kristjánsson). Eins og mörgum er kunnugt um þá er þetta píanó hinn mesti merkisgripur en var farinn að láta töluvert á sjá.

Síðast uppfært ( Þriðjudagur, 07 Október 2008 12:34 )
Lesa meira...
 
Næsta skólaár Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Nú eru síðustu umsóknirnar að berast fyrir dvöl í Skólabúðunum næsta skólaár. Ljóst er að aðsóknin er síst minni en undanfarin ár. Á næstunni munum við svo leggja lokahönd á niðurröðun á skólaárið og senda skólunum úthlutun á þeirra dvalartíma.

Síðast uppfært ( Þriðjudagur, 07 Október 2008 12:33 )
 
Handverksdagur Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Handverksdagur við Húnaflóa var haldinn í Reykjaskóla 31. mars sl. Dagurinn var haldinn á vegum NORCE strandmenningarverkefnisins í samstarfi við stofnanir í Húnaþingi. Á dagskránni voru fyrirlestrar og námskeið og má með sanni segja að þessi handverksdagur hafi verið vel sóttur og lukkast mjög vel.  Myndir frá deginum eru undir hnappnum Myndir hér til hliðar.

Síðast uppfært ( Þriðjudagur, 07 Október 2008 12:34 )
 
Ný heimasíða Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Við fögnum þessari nýju heimasíðu Skólabúðanna í Reykjaskóla og vonum að hún verði okkur og ykkur til gagns og gleði. Við ætlum að setja inn myndir í hverri viku og uppfæra síðuna jafnt og þétt. Hægt er að senda okkur tölvupóst með því að velja hnappinn "Hafa samband" hér til hliðar.
Síðast uppfært ( Þriðjudagur, 07 Október 2008 12:34 )
 
Ný kennslugrein Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Nú erum við að hefja kennslu í nýrri kennslugrein sem ber nafnið Undraheimur auranna og er fjármálafræðsla sem er sérsniðin að okkar starfi. Það eru Sparisjóðirnir á Íslandi sem styrkja þessa fræðslu.
Síðast uppfært ( Þriðjudagur, 07 Október 2008 12:35 )
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 Næsta > Síðasta >>

Síða 6 af 7

Skoðanakönnun

Hvað finnst þér skemmtilegast í skólabúðunum?
 

Skólar þessa vikuna

Hlíðaskóli og Hvaleyrarskóli.
200

Að skoða síðuna núna

Það er/u 4 gestir inni